Virkilega flott þriggja herbergja endaíbúð á 3.hæð í húsi fyrir 55 ára og eldri. Lyfta, gott útsýni, lokaðar svalir með opnun og bílastæði ásamt geymslu í bílakjallara. Frábær staðsetning í miðbæ Egilsstaða og því stutt í flesta þjónustu.Stofa og eldhús eru í opnu rými með parket á gólfi og útgengt á 14,6 m², og lokaðar svalir sem einfalt er að opna á góðviðrisdögum. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, þar er rúmgóð innrétting, sturta og handklæðaofn. Tvö svefnherbergi eru í íbúðinni, bæði með parket á gólfi og fataskápar eru í báðum herbergjum. Þvottahús er flísalagt og þar er fín innrétting. Flísar eru einnig á forstofu og þar er góður fataskápur.
Eigninni tilheyrir bílastæði og geymsla í bílakjallara.