Bláargerði 19, 700 Egilsstaðir
95.500.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á einni hæð
4 herb.
184 m2
95.500.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
2022
Brunabótamat
97.900.000
Fasteignamat
91.250.000

INNI fasteignasala s. 580 7905 -  [email protected]
 

Nýlegt og glæsilegt einbýlishús á einni hæð með innbyggðum bílskúr, þremur rúmgóðum svefnherbergjum, fataherbergi og tveimur baðherbergjum, fallegum garði, stórri timburverönd og steyptu bílastæði með snjóbræðslukerfi. Húsið var byggt árið 2022.
Stofa og eldhús eru í opnu og björtu rými með upptekið loft, parket á gólfi og útgengt á stóra timburverönd. Í eldhúsi er falleg innrétting með eyju og góðu vinnuplássi. Baðherbergi er flísalagt og með fíbó-plötum á veggjum. Þar er baðkar með sturtu í, falleg innrétting og handklæðaofn. Útgengt er úr baðherbergi í bakgarð. Þrjú rúmgóð svefnherbergi eru í húsinu, öll með parketi á gólfi. Fataskápar eru í tveimur herbergjum en fataherbergi inn af hjónaherbergi. Flísalagt og glæsilegt baðherbergi með sturtu er einnig inn af hjónaherbergi. Þvottahús er afar rúmgott með góðri innréttingu, flísum á gólfi og útgengt í bakgarð. Innangengt er í bílskúr í gegnum þvottahús. Bílskúr er flísalagður og vel frágenginn með breiðri bílhurð og sjálfvirkum opnara.
Fallegt og vel skipulagt einbýlishús í mjög góðu ástandi – byggt 2022.

Senda fyrirspurn

Skilaboð hafa verið send..

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send..