Bleiksárhlíð , 735 Eskifjörður
36.000.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
5 herb.
128 m2
36.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1979
Brunabótamat
65.900.000
Fasteignamat
28.950.000

Lf-fasteignasala/Lindin fasteignir s. 893-1319 og Þórdís Pála Reynisdóttir, löggiltur fasteignasali [email protected] kynna:
Bleiksárhlíð 2-4, Eskifirði.
5 herbergja íbúð á 2. hæð í fjölbýlishúsi sem er 3 hæðir og kjallari. Íbúðin er falleg og rúmgóð og hefur hlotið ýmsar endurbætur í gegn um tíðina og er eldhúsinnréttingin nýleg og mjög stutt er síðan baðherbergi og salerni var endurnýjað en þar er um að ræða 2 aðskilin rými. 
Af stigagangi er komið inn í afstúkaða forstofu með mjög nýlegum fataskáp, lítil stofa er á vinstri hönd og eldhús og borðstofa á hægri hönd. Lítið þvottahús/búr er inn úr eldhúsinu.
4 svefnherbergi eru í íbúðinni, eitt er teiknað sem geymsla en hefur verið stækkað og er með 2 gluggum.
Baðherbergið er tvískipt, salerni í sér rými og baðaðstaða í öðru.
Tvennar ágætlega rúmgóðar svalir.eru á íbúðinni, aðrar út af stærsta svefnherberginu og hinar út af borðstofunni.
Gott skápapláss er í íbúðinni.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í kjallara hússins.
Íbúðinni tilheyrir geymslurými í kjallara sem er ófrágengið.
Ágætt útsýni er frá íbúðinni.

Senda fyrirspurn

Skilaboð hafa verið send..

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send..