Virkilega fínt og vel staðsett fimm herbergja einbýlishús á einni hæð með frístandandi bílskúr og sér stúdíóíbúð. Eign sem augljóslega hefur verið haldið vel við alla tíð.
Þakjárn og pappi voru endurnýjuð fyrir ca. 5 árum, vatnslagnir eru allar nýjar, baðherbergi er endurnýjað, parket í húsinu er nýlegt sem og allar innihurðir og verið er að endurnýja stúdíóíbúð að hluta.Stofa er rúmgóð og björt með parket á gólfi. Eldhús er einnig rúmgott með hvítri innréttingu, borðkrók og flísum á gólfi. Inn af eldhúsi er þvottahús og þaðan er útgengt á stóra hellulagða verönd í bakgarði. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, þar er bæði baðkar og sturta. Fjögur svefnherbergi eru í húsinu, öll með parket á gólfi og fataskápar eru í þremur herbergjum.
Bílskúr er tvískiptur. Fremst er hefðbundinn og rúmgóður bílskúr með bílhurð en undir honum er snyrtilegur kjallari með nokkuð góðri lofthæð, mjög fínt rými. Í aftari hluta bílskúrs er stúdíóíbúð með sérinngangi. Mjög fín íbúð með sérsvefnrými/herbergi í kjallara undir íbúðinni. Þar er opnanlegt gluggafag.
Aðkoma að húsinu er steypt sem og verönd framan við húsið en þar er einnig hellulögð verönd. Á milli bílskúrs og íbúðarhúss eru hellur sem og stór hellulögð verönd bakatil.
Garður er afar vel hirtur og fallegur.
Mjög spennandi og vel staðsett eign, örstutt frá skólum og íþróttamiðstöð.