Fagrihjalli 1, 690 Vopnafjörður
Tilboð
Einbýli/ Einbýlishús á tveimur hæðum
6 herb.
217 m2
Tilboð
Stofur
1
Svefnherbergi
5
Baðherbergi
0
Inngangur
Sér
Byggingaár
1960
Brunabótamat
93.100.000
Fasteignamat
30.250.000

LF-fasteignasala/Lindin fasteignir s. 893-1319 og Þórdís Pála Reynisdóttir löggiltur fasteignasali [email protected] kyna:
Fagrihjalli 1, Vopnafirði
Frá aðalinngangi er komið inn í aðalrýmið á neðri hæð.
Forstofa er flísalögð og þaðan er innangengt í bílskúr.
Á neðri hæðinni eru tvö stór parketlögð herbergi.
Baðherbergi og þvottahús eru í sameiginlegu rými, þar er lítil skápainnrétting, vaskur, klósett og sturta.
Útfrá baðherbergi er annar inngangur hússins, þar fyrir utan er pallur og bílastæði, frá þeirri hlið er innkeyrsla í bílskúrinn.
Lítið rými er undir stiganum sem liggur upp á efri hæð hússins.
Á stiga og stigapalli er dúkur, útfrá stigapalli er gengið út á svalir.
Á efri hæð er komið inn í hol og þaðan er gengið inn í öll rými á efri hæðinni.
Þar eru þrjú svefnherbergi, rúmgott hjónaherbergi sem hefur nýlega verið múrað upp á nýtt og er með nýtt parket.
Annað hinna herbergjanna er ágætlega stórt en hið þriðja er minna. Þau eru bæði parketlögð.
Baðherbergi efri hæðar er með walk inn sturtu, flísum á gólfi og plötuflísum á veggjum.
Stofa og borðstofa eru parketlagðar, í stofunni er stór gluggi sem snýr út að firðinum með einstöku útsýni.
Í eldhúsinu er ný IKEA innrétting, engir efri skápar, nýr vaskur, háfur og flísar á gólfi.
Skipt var um alla ofna í húsinu vor 2021.
Gluggar eru nokkurra ára en engin móða er á milli glerja.
Búið er að klæða hluta af framhlið hússins með Steini klæðningu ásamt því að gert var við múrskemmdir utanhúss                                                    og tröppur framan við hús voru steyptar uppá nýtt.
Stór og gróinn garður ásamt  rúmgóðum geymsluskúr.
Rúmgóður bílskúr, nýmálaður, þar sem veggir eru klæddir að innan og búið er að setja nýjar lagnir, niðurfall og flot á gólf.

Senda fyrirspurn

Skilaboð hafa verið send..

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send..