Sérlega fallegt og vel staðsett einbýlishús á einni hæð með fjórum svefnherbergjum og frístandandi bílskúr. Eign sem vel hefur verið haldið við og er talsvert endurnýjuð, s.s. baðherbergi endurnýjað 2017, ofnalagnir og ofnar 2022–2023 og nýlegt parket á öllum gólfum svo eitthvað sé nefnt.Stofa, borðstofa og hol eru í nokkuð opnu og rúmgóðu rými með parket á gólfi. Útgengt er úr holi á timburverönd við suðurhlið hússins í einstaklega skjólsælum og fallegum og vel hirtum garði. Fín innrétting er í eldhúsi og ágætt búr er við hlið eldhúss. Baðherbergi er glæsilegt enda allt endurnýjað árið 2017. Þar eru flísar í hólf og gólf og hiti í gólfi. Á baðherbergi er sturta, rúmgóð innrétting og handklæðaofn. Fjögur svefnherbergi eru í húsinu, öll með parket á gólfi. Þvottahús er flísalagt og þaðan er útgengt. Flísar eru einnig í forstofu. Bílskúr er 33,6 m² og stór hluti hans er í dag snyrtileg vinnustofa með sérinngangi og salerni. Hinn hluti bílskúrs er nýttur sem geymsla og er með bílhurð.
Hér er um að ræða hús með marga góða kosti: gott ástand og vel við haldið hús, góða staðsetningu, fallegan og vel hirtan garð og fjögur svefnherbergi.