Lf-fasteignasala/Lindin fasteignir s. 893-1319 og Þórdís Pála Reynisdóttir löggiltur fasteignasali
[email protected] kynna:
Hafnarbraut 8, Neskaupstað.Eignin er samkvæmt skráningu 282.5 fermetrar. Gamall geymsluskúr í ágætu ástandi er bakvið húsið. Mögulega er hann inni í fermetratölunni.
Varmadæla hefur verið sett upp og er hitakostnaður eftir það aðeins brot af því sem áður var.
Jarðhæð: Tvöfaldur bílskúr með innkeyrsluhurð og gönguhurð. Á bakvið bílskúrinn er lagnarými þar sem auðvelt er að komast að lögnum.
Gengið er upp breiðar útitröppu, með samtengdum svölum.
Miðhæð: Komið er inn í forstofu og er gengið úr henni inn í íbúðina. Í forstofunni er lítil lúga niður í bílskúrinn.
Inn af forstofu er löng og mjó geymsla sé gengið í gegn um hana er komið að bakdyarainngangi og hefur verið byggt skýli framan við útidyrnar.
Við hlið forstofunnar er opið rými sem liggur eftir húsinu frá suðri til norðurs. Þar er góð stofa með stórum útsýnisglugga, á milli stofu og eldhúss er rúmgott hol og er það opið inn í eldhúsið.
Efsta hæð: Á efstu hæð eru fjögur svefnherbergi. Þrjú þeirra eru rúmgóð. Svaladyr eru úr einu herberginu út á stórar svalir. Baðherbergi er flísalagt og hafa veggflísar verið málaðar. Sturtuklefi er á baðherberginu.
Lítil sólstofa er á svölunum og er innangengt í hana úr húsinu.
Stórar svalir eru framan og utan við efstu hæð hússins.
Aukaíbúð: Séríbúð er á hæðinni með sérinngangi, í hana er innangengt úr íbúðarhúsinu. Íbúðin er um 70 fermetrar og skiptist svefnherbergi, stofu og rúmgott baðherbergi með aðstöðu fyrir þvottavél.