Lf-fasteignasala/Lindin fasteignir s. 893-1319 og Þórdís Pála Reynisdóttir löggiltur fasteignasali
[email protected] kynna:
Miðstræti 10, Neskaupstað.Rúmgóð nýlega endurnýjuð 5 herbergja íbúð með 2 baðherbergjum og þvottahúsi innan íbúðar.
Íbúðin er á efri hæð hússins.
Íbúðinni fylgir góður geymsluskúr með áföstum sólpalli.
Garðurinn við húsið er skjólsæll, sólríkur og gróinn.
Eldhúsið er með góðri innréttingu og flísum á gólfi.
Komið er inn í glerskála sem er viðbót við íbúðina og er nýttur sem forstofa.
Við hlið forstofunnar er þvottahús sem jafnframt er baðherbergi en að auki er nýlega uppgert baðherbergi inni í íbúðinni.
Svefnherbergin eru 4 og stofa að auki.
Húsið sjálft er snyrtilegt og í góðu ástandi.