LF-fasteignasala/Lindin fasteignir s. 893-1319 og Þórdís Pála Reynisdóttir löggiltur fasteignasali
[email protected] kynna:
Þórhólsgata 6, Neskaupstað, Fjarðabyggð.Mjög rúmgott og veglegt einbýli með innbyggðum bílkskúr og bílskýli.
Húsið er kjallari hæð og rishæð. Kjallari steyptur en efri hæðirnar úr timbri.
Stórar svalir eru á miðhæðinni við suðurhlið hússins og við hluta vesturhliðar hússins, minni vestursvalir eru á rishæðinni.
Varmadæla loft í loft er á húsinu og blæs hún inn í alrýmið sem er eldhúsið og stofan og einnig upp á "svalir" sem eru á miðri rishæðinni.
Í dag eru 4 svefnherbergi í húsinu en hægt er að bæta 2 herbergjum við, öðru á rishæðini og hinu í kjallaranum.
Aðalhæð:Frá bílastæði er gengið upp góðar tröppur að aðalinngangi hússins. Við hlið forstofu er mjög rúmgott þvottahús með góðri innréttingu og dyrum út í bakgarðinn. Úr forstofunni er komið inn í stórt alrými sem er stofan og eldhúsið. Stórir suðurgluggar eru á stofunni og einnig dyr með breiðri rennihurð út á mjög rúmgóðar og skjólgóðar suðursvalir sem einnig ná vestur fyrir húsið og tengjast útitröppunum. Rúmgott svefnherbergi er á hæðinni og inn úr því er gott fataherbergi. Baðherbergið er rúmgott með frístandandi baðkari og góðri sturtu.
Úr alrýminu er góður stigi sem liggu bæði upp á rishæðina og einnig niður í kjallaranna.
Rishæð:Á rishæðinni er í dag eitt rúmgott svefnherbergi með vestursvölum og opið rými á nokkruskonar svölum sem eru á miðri rishæðinni. Þar er mögulegt að hafa vinnuaðstöðu. Af svölunum sést niður í stofuna og eldhúsið. Hægt vær að bæta öðru góðu svefnherbergi á rishæðina en það væri á kostnað lofthæðar í svefnherberginu á aðalhæðinni.
Kjallari/bílskúr:Í kjallaranum er samkvæmt teikningu mjög rúmgóður bílskúr en hann hefur verið minnkaður og hluta hans breytt í svefnherbergi, einnig er annað svefnherbergi í kjallaranum og vel mögulegt að bæta því 3ja við. Mjög stórt geymslurými er einnig í kjallaranum og býður það upp á ýmsa möguleika og mætti t.d. taka hluta af því og breyta í baðherbergi.
Bílskúrinn er í dag nýttur sem líkamsræktaraðstaða en hann er ágætlega rúmgóður fyir bíl þrátt fyrir að hafa verið minnkaður.
Húsið stendur á friðsælum stað miðsvæðis í Neskaupstað.
Húsið er teiknað af teiknistofunni Archús.