Vel skipulögð og sérlega vel staðsett þriggja herbergja íbúð í parhúsi á einni hæð. Parket er á gólfi í stofu en flísar í eldhúsi þar við hliðina. Léttur veggur er á milli eldhúss og stofu. Ágæt og nokkuð rúmgóð innrétting er í eldhúsi. Baðherbergi er flísalagt, þar er sturta og innrétting. Tvö svefnherbergi eru í íbúðinni, bæði með parket á gólfi og þrefaldur fataskápur er í öðru herberginu. Forstofa er flísalögð sem og þvottahús inn af forstofu. Útgengt er úr þvottahúsi. Háaloft er yfir allri íbúðinni og er það aðgengilegt í gegnum lúgu með fellistiga í forstofu. Timburverönd er framan við íbúðina (suðurhlið) og garður er gróinn. Bílastæði er malbikað.
Vel staðsett eign, innst í botnlangagötu á Egilsstöðum.