Vel skipulagt og nokkuð mikið endurnýjað hús að innan með fimm svefnherbergjum og stórri lóð.Stofa og eldhús eru samliggjandi í fremur opnu rými með útgengt á steypta verönd í garði. Rúmgóð og fín innrétting er í eldhúsi. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Þar er góð innrétting, stór sturta og aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara. Hiti er í baðherbergisgólfi. Fimm svefnherbergi eru í húsinu eins og það er í dag þar sem þvottahúsi var breytt í herbergi og þvottavél og þurrkara komið fyrir í rúmgóðu baðherbergi. Forstofa er flísalögð sem og gestasalerni þar inn af. Hiti er í gólfi í forstofu.
Háaloft er yfir öllu húsinu.
Húsið stendur á 1301,6 m² lóð.