Miðststræti 6, skemmt eftir bruna. Fæst mjög ódýrt. Eignin er auglýst fyrir Bjarna Hólmar Einarsson lögmann sem gefur frekari upplýsingar í síma 821 2545 Til sölu öll fasteignin að Miðstræti 6, Fjarðabyggð, sem eru eftirfarandi fastanúmer:
F 216 9334, 01 0101, skráð 182,1 fm.
F 216 9335, 01 201, skráð 251,4 fm.Þá gæti fylgt með í kaupunum fasteignin Miðstræti 4 sem er gamalt hús á aðliggjandi lóð, geymsla 71,60 fm.
Gróf lýsing á eignarhlutum:Húsið er 3ja hæða, byggð í brekku og er efsta hæðin mun stærri með viðbyggðan bílskúr.
Kjallari: Kjallari er steinsteyptur. Eigandi var byrjaður að útbúa þar íbúð en það var skammt á veg komið, verið var að vinna við lagnir í gólfi.
Miðhæð: Miðhæð var endurnýjuð mikið árið 2017 og m.a. var skipt um trégólfið á milli hæða. Á þessum stað kom eldurinn upp og er hún ónýt að innan.
Efsta hæð: Bruninn á neðstu hæðinni skemmdi gólfi á milli hæða og er efsta hæðin mjög illa farin af reyk. Á efstu hæðinni var rekin hárgreiðslustofa. Sambyggt við efstu hæðina er gamall bílskúr eða rými sem mætti nota sem bílskúr eða jafnvel útbúa einhverjar vistarverur. Engar teikningar að slíku liggja þó fyrir.
Ástand eftir bruna: Húsið er á steinsteypum kjallara sem er traustur og ekki skemmdur eftir eldinn. Efri hæðirnar tvær eru timburveggir, forskalaðir á járnplötu. Veggurinn í vestur er illa farinn á 2. hæð eftir eldinn. Veggurinn til austurs er nánast alveg steinsteyptur. Bruninn fór frá miðhæð upp í gegn um trégólf og upp á efstu og er þar allt ónýtt vegna sóts. Þá fór eldurinn eitthvað upp í þakið og þarfnast það a.m.k. lagfæringar.
Forsendur kaupa:Eignin fæst eins og hún er á 1200 þúsund staðgreitt. Kaupandi tekur við henni eins og hún er og þarf m.a. að sjá um að henda úr íbúðunum öllu dóti, sem er talsvert. Kaupandi þarf að ábyrgjast gagnvart Fjarðabyggð að hann sjái um að koma húsinu í viðunandi horf eða koma lóðinni í viðunandi horf.
Kaupandi verður að meta hvort hann geti gert við húsið og búið til úr því íbúðir, eða hvort þurfi að rífa það að hluta eða öllu leyti.
Frekari upplýsingar gefur Bjarni Hólmar Einarsson lögmaður í síma 821 2545.