Glæsileg og vel staðsett fjögurra herbergja íbúð á 1. hæð með útgengt á rúmgóða og steypta verönd með skjólveggjum (hlið út í garð).
Vel rekið húsfélag og sameign augljóslega sinnt vel.
Virkilega spennandi eign.Stofa og eldhús eru í opnu rými með parketi á gólfi og þaðan er útgengt á verönd sem vísar til suðurs. Ljómandi fín og rúmgóð innrétting er í eldhúsi. Baðherbergi er flísalagt. Þar er baðkar með sturtu, handklæðaofn og góð innrétting. Þrjú svefnherbergi eru í íbúðinni, öll með parketi á gólfi og fataskápar eru í öllum herbergjum. Í íbúðinni er lítið þvottahús.
Íbúðinni tilheyrir sér geymsla í kjallara (8 m²) ásamt hlutdeild í hjóla- og vagnageymslu.