Strandgata 71A, 735 Eskifjörður
54.000.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á þremur hæðum
4 herb.
177 m2
54.000.000
Stofur
3
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1924
Brunabótamat
87.100.000
Fasteignamat
33.850.000

Lf-fasteignasala/Lindin fasteignir s. 893-1319 og Þórdís Pála Reynisdóttir löggiltur fasteignasali [email protected] kynna:
Strandgata 71A, EYFELL, Eskifirði.
Hlýlegt eldra einbýli sem hefur fengið gott viðhald í gegnum tíðina og verið mjög mikið endurnýjað á síðustu árum.
Lítil aukaíbúð á neðstu hæð sem getur gefið ágætar leigutekjur.
Aukaíbúðin samanstendur svefnherbergi, forstofu og stofu, eldhúsi og baðherbergi með sturtu.
Rúmgóð geymsla er undir sólpallinum og þar er einnig hægt að hafa vinnuaðstöðu.
Á aðalhæðinni er komið inn í forstofu sem er í nýlegri viðbyggingu ásamt ágætu baðherbergi þar sem bæði er sturta og pláss fyrir þvottavél og þurrkara hlið við hlið.
Aðalhæðin  hefur verið opnuð og er í dag eitt stórt rými með fallegri, stórri eldhúsinnréttingu sem hæfir aldri hússins, stofu og borðstofu.
Falleg tvöföld hurð hefur verið sett á stofuna og dyr út á sólpallinn.
Gólfefni á aðalhæðinni eru gróf dökk viðarborð sem gefa hæðinni skemmtilegt gamaldags yfirbragð.
Uppi eru 3 góð svefnherbergi og fataherbergi undir súðinni.
Stór steyptur sólpallur með skjólveggjum er vestan við húsið.

 

Senda fyrirspurn

Skilaboð hafa verið send..

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send..