Dalbrún 12, 700 Egilsstaðir
88.500.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á einni hæð
5 herb.
189 m2
88.500.000
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
2004
Brunabótamat
94.000.000
Fasteignamat
72.250.000

Fallegt einbýlishús á einni hæð með innbyggðum 32,1 m² bílskúr og fjórum svefnherbergjum. Steypt verönd í garði sem og stór timburverönd og nokkuð stór útigeymsla (c.a. 14 m²).
Stofa, borðstofa og eldhús eru í opnu og sérlega rúmgóðu rými með flísar á gólfi. Útgengt er úr rýminu á stóra verönd. Inn af rýminu er flísalagt sjónvarpshol. Fjögur svefnherbergi eru í húsinu, öll með parket á gólfi. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, þar er góð innrétting, sturta og ótengdur handklæðaofn. Þar er einnig baðklefi sem afar lítið er notaður og því ekki tekin ábyrggð á ástandi hans. Gestasalerni er flísalagt. Innangengt er í flísalagðan bílskúr. Hiti er í öllum gólfum í húsinu. 
Háaloft er yfir húsinu en það er ekki í fermetratölu hússins en þar er heilmikið og gott rými með góðri lofthæð í stórum hluta þess og býður upp á ýmsa möguleika. Í rýminu eru tveir opnanlegir gluggar. Háaloft er aðgengilegt með lúgu og fellistiga.

Senda fyrirspurn

Skilaboð hafa verið send..

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send..