Vel skipulagt einbýlishús á tveimur hæðum með fimm svefnherbergjum og 52,6 m² tvöföldum bílskúr, samtals 213,5 m². Útgengt á svalir sem og verönd í bakgarði. Lítil íbúð á jarðhæð.Á efri hæð eru eldhús og borðstofa í rúmgóðu og opnu rými með flísum á gólfi og útgengt á svalir að framanverðu og út á timburverönd í bakgarði. Við hlið eldhúss/borðstofu er stofa með parketi á gólfi og er vel opið á milli þessara rýma. Á efri hæð eru þrjú rúmgóð svefnherbergi, öll með parketi á gólfi og fataherbergi er inn af einu herberginu. Baðherbergi er flísalagt. Þar er baðkar með sturtu og handklæðaofni.
Á neðri hæð er flísalögð forstofa og þaðan er innangengt í tvöfaldan bílskúr með tveimur bílhurðum og flísum á gólfi. Innst í bílskúr eru geymslur. Á neðri hæð, inn af forstofu, hefur verið útbúin lítil íbúð með sérbaðherbergi, tveimur herbergjum og litlum eldhúskrók.