LF-fasteignasala/Lindin fasteignir s. 893-1319 og Þórdís Pála Reynisdóttir löggiltur fasteignasali
[email protected] kynna:
Árdalur 2, Eskifirði, Fjarðabyggð.
Um er að ræða 4ra herbegja 123,5 fermetra ENDAÍBÚÐ í raðhúsi.Húsið er til leigu og hentar hvort sem er fjölskyldu eða 3 einstaklingum saman og jafnvel 2-3 pörum saman.
Mjög rúmgott og fallegt endaraðhús með 3 góðum svefnherbergjum sem öll eru með skápum.
Húsið er Íslensk hönnun teiknað af Rúnari Inga Guðjónssyni.
Burðarvirki hússins er timbur.
Húsið er klætt að utan með Alucoil Larsen álklæðningu frá Idex ehf. Aðallitur dökkgrár en gaflveggir og inndregnir veggir minni íbúða eru með ljósri álklæðningu. Á þaki er báruþakál, dökkgrátt að lit. Svartar álrennur utan á þakkanti.
Húsið er klætt að innan, veggir og loft með 12,5mm Fermacell harðgifsi, sterkar trefjaplötur sem eiga ekki að mygla þó að vatn komist að þeim.
Gluggar/Útihurðir eru ál-tré gluggar/hurðir, hvítt að innan en svart að utan.
Hitakerfi: Gólfhitalagnir, tengdar saman við tengigrind.
Í eldhúsi er hvít hálf-glans innrétting með króm Grohe blöndunartækjum og 50x40 stálvaski. Vandað Bosch helluborð/bakaraofn, vifta OG AÐ AUKI örbylgjuofn, uppþvottavél og ísskápur m/frysti sem fylgja. Led ljós eru í innréttingu.
Borðplötur eru úr dökkgráum steini. Helluborðið í eyju ásamt viftu í helluborðinu sjálfu. Í eyjunni eru tvöfaldir skápar og skúffur.
Í öllum svefnherbergjum og forstofu eru vandaðir hvítir fataskápar.
Í þvottahúsi er stálvaskur með skáp undir.
Innihurðir eru frá Birgisson ehf, hvítlakkaðar og forstofuhurðar eru hvítar með glerrömmum.
Gólfefni eru frá Birgisson ehf, öll gólf nema blautrými og forstofa, verða með vönduðu harðparketi frá Birgisson ehf.
Forstofa, baðherbergi og þvottahús flísalögð.
Á baðherbergi er vönduð hálfglans hvít baðinnrétting með háum skáp og djúpum skúffum undir vaski.
Salerni er vegghengt, sturta með steingólfi og glerþili. Blöndunartæki frá Grohe. Krómaður handklæðaofn.
Á baðherbergi eru flísar á tveimur veggjum við sturtusvæði.
Lagnaleið fyrir rafmagnshleðslu út á bílastæði. (hleðslustöð fylgir ekki).
Lagnaðleið fyrir heitan pottbeggja megin við húsið.
Sorptunnuskýli á lóð.
2 steypt bílastæði.